Monthly Archives: July 2013

31. júlí – Veðurtepptur á Hvalsneskrók

Guðni Páll á einn róðralegg eftir til að klára hringinn. Hann sá fram á að geta klárað róðurinn í júlí, en það er hins vegar alveg í takt við þær aðstæður sem hann hefur þurft að glíma við í allt … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

30. júlí – Djúpivogur

Guðni Páll lagði upp frá Vattarnesi um klukkan 11:30 í gærmorgun. Hann fékk góðan meðvind allt þar til kom að Kambanesi en þá datt allt í dúnalogn og stilltan sjó. Þokan var þónokkur þegar hann lagði af stað og þurfti … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

29. júlí – Vattarnes við Reyðarfjörð

Nú er loks farið að sjá fyrir endann á þessu og þá hleypur kapp í kinn. Guðni Páll réri heila 50 km í gær, frá Skálanesi að Vattarnesi, á utanverðum Reyðarfirði. Hann lagði upp um klukkan 10 í gærmorgun og … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

28. júlí – Viðtal við Guðna Pál

Rétt fyrir klukkan tíu í morgun lagði Guðni Páll upp frá Skálanesi við svipuð skilyrði og undanfarna daga, þoku en ágætis veðri. Nú er hann að færa sig austar og er hægt að fylgjast með staðsetningu hans hér: http://share.findmespot.com/shared/faces/viewspots.jsp?glId=0slJ7W2E80CHTLdWvOePSQ8ZEKWI2IeFR Sirrý … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

27. júlí – Borgarfjörður eystri

Guðna Páli gekk róðurinn mjög vel í gær, þrátt fyrir svarta þoku, og var hraðinn á fyrstu 25 kílómetrunum í kringum 8 km/klst. Hann réri þétt upp með landinu suður Héraðsflóann og tók sér hvíldarpásu þegar hann var kominn á … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

26. júlí – Borgarfjörður eystri

Enn er svartaþoka í Héraðsflóa en stormnum, sem kyrrsetti Guðna Pál, hefur lægt og sjórinn er lygn. Guðni ákvað því að leggja af stað um klukkan 10 í morgun og freista þess að komast allt til Borgarfjarðar eystri með hjálp … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

25. júlí – Ófært um Héraðsflóann

Það er rok af suðri mikill sjór og hvítt í föll inn allan Héraðsflóann. Það er því ekki róðrarveður í dag og frestast róðurinn því til morguns. Texti fenginn af síðu Kayakklúbbsins.   Southerly winds are now blowing hard in Héraðsflói, … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

25. júlí – Ker við Héraðsflóa

Þótt veðurblíðan hafi leikið við okkur á mest öllu landinu undanfarna daga hefur Guðni Páll lítið getað notfært sér það. Skilyrði hafa verið mjög slæm til róðra, svarta þoka eða sjólag úfið. Á mánudag kom hann að landi í Strandhöfn … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

23. júlí – Vopnafjörður

Klukkan 13 í gærdag ýtti Guðni Páll kayak sínum frá landi í Svartanesi við Digranesvita. Hann hafði ætlað sér að ná að Strandarhöfn en vegna sjólags komst hann ekki alla leið. Mikill hitafarsvindur hafði ýft sjó upp meðfram Viðvíkurbjargi og … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

21. júlí – Strandhöfn á Vopnafirði

Í nótt gisti Guðni Páll í Þórshöfn hjá vinafólki eftir að hafa náð að Eiðsvík á sunnanverðu Langanesi í gær. Í dag lagði hann svo af stað klukkan 9:20 þar sem hann ætlar að taka 16 km þverun yfir Bakkaflóann … Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment